
að mestu leyti sjálfmenntuð
í myndlistinni,
en hefur þó sótt
fjölda námskeiða á myndlistarsviðinu
hjá lærðum leiðbeinendum
um árabil.
Þó svo að hún hafi
fengist við myndlist í nær þrjátíu
ár hélt hún ekki einkasýningu á
verkum sínum fyrr en sumarið
2008 og þá í Reykjavík Art Gallery.
Í þessari sýningu sem hún nefnir
Tilbrigði við Jökulinn, vinnur hún
úr efniviði sem hún sótti í Snæfellsjökul
og umhverfi hans fyrr á
árum er hún starfaði sumarlangt
við fótskör Snæfellsássins. Dulmögnun
og kraftur Jökulsins birtist
hér í mjög persónulegum málverkum.

