|
Listaverkabók og sýning Páls á Húsafelli
Í tilefni útgáfu listaverkabókarinnar Páll á Húsafelli verður opnuð sýning á höggmyndum og bergþrykksmyndum Páls í Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu 30 í Reykjavík laugardaginn 7. nóvember kl. 14.00.
Listaverkabókin Páll á Húsafelli er gefin út í tilefni hálfrar aldar afmælis listamannsins 27. mars 2009, en á þeim tímamótum var haldin umfangsmikil sýning á verkum hans í Reykjavík Art Gallery. Í tengslum við sýninguna skráði Þorsteinn Jónsson hundruð listaverka Páls og setti saman þessa bók með sýnishornum af ólíkum viðfangsefnum listamannsins.
Páll á Húsafelli hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist og komið víða við í sinni listsköpun. Í bókinni er sagt frá umhverfi Páls heima á Húsafelli, sögulegri arfleifð frá séra Snorra, Draugaréttinni, Kvíunum, Húsafellskirkju og heilagri Sesselíu. Vinnustofurnar á Húsafelli og Bæjargilið er fyrst og fremst vettvangur Páls og þar hefur hann í áratugi unnið að listsköpun sinni.
Bókin byggist upp af stuttum köflum um hina ýmsu þætti í list hans. Málverkið stundaði hann nær eingöngu fyrstu árin, en þekktastur er hann fyrir höggmyndalist sína. Ítarlega er sagt frá höggmyndunum, sýningum heima og erlendis og minnismerkjum sem standa víða um land. Þrjár nýjar aðferðir í myndlistarsköpun eiga uppruna sinn í vinnustofum Páls á Húsafelli, en það er steinþrykk, helluþrykk og svellþrykk. Samstarf Páls og Thors Vilhjálmssonar kemur og mikið við sögu.
Steinharpan sem Páll setti saman úr steinhellum á Húsafelli hefur víða komið við sögu, en þekktast er hlutverk hennar í flutningi á tónverkinu Hrafnagaldur Óðins.
Á sýningunni mun Páll taka á móti gestum og árita bók sína. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-17.
Bókin fæst í Reykjavík Art Gallery og helstu bókaverslunum.
Pöntunarsími er: 893 6653
|