|
Skrifað af: Berglind Halldórsdóttir
|
|
Föstudagur, 12. Ágúst 2011 00:00 |
|
|
|
|
Þögul angist.
Sýningin Þögul angist er samsýning þriggja listamanna, þeirra Ívars Brynjólfssonar, Helga Hjaltalín Eyjólfssonar og Bjarna Þórs Péturssonar.
Ívar Brynjólfsson er þekktur fyrir ljósmyndir í anda naumhyggju og hugmyndalistar, þar sem viðfangsefnin eru hversdagslegt umhverfi mannlegrar tilvistar eða forgengileiki okkar manngerða umhverfis. Þrátt efnivið sem flestum þætti líklega óspennandi, jafnvel leiðinlegur (hér er ekki verið að upphefja landið eins og er svo algengt hjá íslenskum ljósmyndurum) er formræn framsetning myndanna mjög skýr og hver formrænn þáttur myndanna er þaulhugsaður útfrá fagurfræðilegu sjónarmiði.
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er í hópi okkar fremstu listamanna sem vinna á mörkum skúlptúrs og hugmyndalistar. Helgi vinnur oft með fáránleika manngerðra hluta sem við hengjum merkingu tilvistar okkar á, margir kannast við fagurlega gerð klukkuhús hans, án gangverks, eða ryksafnara, litlar veggskreytingar sem hafa þann eina tilgang að safna ryki. Undanfarin ár hefur Helgi einnig fengist við að endurgera rekaviðardrumba og beinir þannig athyglinni að þeirri þrálátu ástríðu mannsins að endurgera náttúruna í margvíslegu formi, hvort sem það er landslagsmálverk eða höggmynd af manneskju.
Bjarni Þór Pétursson rær á áþekk mið. Viðfangsefni hans er hið óbærilega tóm í tilvist okkar, sem við reynum sífellt að fylla upp með því að skapa aðra heima til að flýja inn í, og botnlaus óþreyja okkar eftir að slíta tengslin við uppruna okkar. Bjarni vinnur mest með kvikmyndaformið og þá fölsku veröld sem þar er sett á svið í því skyni að sefja mannssálina. Oft er annarlegt tilgangsleysi í myndum Bjarna, en líkt og hjá Helga og Ívari liggur þó þung tilvistarleg tjáning að baki.
Við fyrstu sýn virðast verkin á sýningunni vera einstaklega látlaus. Það sem tengir saman þessa þrjá listamenn, sem segja má að tilheyri þremur kynslóðum, eru djúpar, hljóðlátar vangaveltur um tilgang og tilgerð mannlegrar tilvistar – hin þögla angist.
|
 |
|
|
|
Skrifað af: Berglind Halldórsdóttir
|
|
Þriðjudagur, 04. Maí 2010 09:09 |
Þorsteinn Helgason opnar sýningu 
laugardaginn 8. maí 2010, kl.14.00.
Sýningin stendur til 23. maí 2010.
Þorsteinn Helgason er fæddur í Reykjavík 15. ágúst 1958 og nam arkitektúr í Kaupmannahöfn og myndlist í Myndlistaskólanum í Reykjavík og í Myndlistar- og handíðaskóla Íslands. Hann hélt sínar fyrstu sýningar í Gallerí Borg í Reykjavík árið 1998 og hefur síðan sýnt jafnt og þétt. Auk sýninga hér heima hafa verk hans verið sýnd í Lundúnum, Stokkhólmi og í New York. Þorsteinn er meðeigandi á arkitektastofunni Ask arkitektar.
Málverk eftir Þorstein var eitt fimm íslenskra myndverka sem send voru í Winsor & Newton Millennium Painting Competition eftir forkeppni hérlendis og komst þar í úrslit.. Verk eftir Þorstein eru í eigu ýmissa opinberra aðila og stærri fyrirtækja.
|
|
Skrifað af: Berglind Halldórsdóttir
|
|
Miðvikudagur, 27. Janúar 2010 09:27 |
Vúlkan
Samsýning Laufeyjar Johansen og Jurij Kelhar
Laufey Johansen og Jurij Kelhar opna samsýningu á málverkum í Reykjavík Art Gallery laugardaginn 30. janúar nk. kl. 14.00.
Laufey Johansen, f. 1968, hefur haldið einkasýningar hér á landi og í London og tekið þátt í samsýningum erlendis, m.a. á Tvíæringnum í Liverpool og í Listasafninu á Akureyri 2009. Á sýningunni má sjá þróun í verkum hennar síðustu tvö árin, en viðfangsefni hennar er að miðla orku frá týndu plánetunni Vúlkan. Í tilefni sýningarinnar verður gefin út bók um listakonuna.
Jurij Kelhar, f. 1972 í Slóveníu, hefur sýnt málverk sín í virtum galleríum í heimalandi sínu, Slóveníu. Hann hefur lengi haft dálæti á íslenskri náttúru og heimsótt Ísland nokkrum sinnum til að stunda sína listsköpun, en aðal viðfangsefni hans er eldgos og glóandi hraunstraumurinn.
Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu 30 er opið alla daga nema mánudaga kl. 14.-17., en sýningin stendur til 14. febrúar.
|
|
|
Skrifað af: Berglind Halldórsdóttir
|
|
Þriðjudagur, 05. Janúar 2010 10:14 |
|
BJARNI SIGURBJÖRNSSON
- Myrkt hold - í Reykjavík Art Gallery |
 |
|
„Ég lít á mig sem eins konar garðyrkjumann sem kemur gróðri af stað og reynir síðan að hlúa að honum
eftir bestu getu. Ég aðstoða málverkið þar sem það er að vaxa fram en reyni ekki að halda
algerri stjórn á því.“
|
|
|
Skrifað af: Berglind Halldórsdóttir
|
|
Miðvikudagur, 02. Desember 2009 00:00 |
|
Hrefna Víglundsdóttir í Reykjavík Art Gallery
Laugardaginn 5. desember nk. kl. 14.00 opnar listmálarinn Hrefna Víglundsdóttir sína þriðju einkasýningu í Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu 30, sem hún nefnir Landið vaknar. Málverk hennar hafa hlotið mikla athygli víða um heim á undanförnum mánuðum, en viðfangsefni hennar er íslensk náttúra með sínum lita- og birtubrigðum, sem hún túlkar á sinn persónulega hátt í óhlutbundnu málverki.
Í formála kynningarbókar um listamanninn sem gefin er út að tilefni sýningarinnar segir Jón Proppé m.a.: “Hún teflir saman köldum flötum og heitum litastrokum þannig að öfgar íslenskrar náttúru virðast gjósa á myndfletinum. Djörf pensilskriftin og spaðastrokur hennar vekja sömu tilfinningar og íslenska landslagið. Í myndunum birtist okkur þokan, grænn heiðagróðurinn, ljósglampinn af jöklunum og gráhvít, ólgandi óveðurskýin sem æða yfir þegar vetrarveðrin geysa í skammdeginu.
Í málverkum hennar slær saman skjannahvítum flötum, himinblárri heiðríkju, grænum gróðurslikjum eða okkurbrúnni mold, og svo svörtum, djúpum strokum sem skera myndflötinn eins og hraunstraumarnir skera íslenskt landslag. Kraftar landsins birtast hér í ólgandi litaspili sem listakonunni tekst að aga innan ramma myndflatarins og fella í mynd þar sem orkan er túlkuð á einfaldan en áhrifaríkan hátt í lit og formum. Birtan, veðrið, grjótið, gróðurinn og sandurinn lifna á striganum í kraftmikilli hreyfingu. Þannig teflir hún náttúruöflunum saman við formfestu abstraktmálverksins og endurlífgar það svo úr verða verk þrungin spennu sem fanga auga og huga áhorfandans en ögra um leið, falleg en hættuleg eins og náttúra norðurslóðanna.”
Sýning Hrefnu stendur til 23. desember og er Reykjavík Art Gallery opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 14-17.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |